Blóðgunar- og kælitankar í fiskiskip

3X Technology hafa samið um sölu tveggja vinnslukerfa í fiskiskip. Annar samningurinn er við útgerðarfélag á Íslandi og mun kerfið verða sett upp í línuskip í eigu félagsins. Síðari samningurinn er við erlent útgerðarfélag og mun kerfið verða sett upp í togara í eigu félagsins.
Bæði vinnslukerfin sem samið hefur verið um byggja á búnaði til blæðingar og kælingar hráefnis og miða að því að hámarka hráefnisgæði. Markmið kaupenda beggja kerfanna eru þau að hámarka hráefnisgæði inn í eigin vinnslur. Til þess að gera það kleyft urðu vinnslukerfi frá 3X Technology fyrir valinu í bæði skipin.
Smellið hér til að fá nánari upplýsingar
Sjávarútvegssýningin í Brussel 2010
3X Technology er meðal þátttakenda á sjávarútvegssýningunni í Brussel sem haldin verður 27 til 29 apríl 2010.
3X Technology mun kynna nýja aðferð við uppþýðingu frosins hráefnis sem notið hefur sívaxandi vinsælda. Einnig mun verða kynnt það nýjasta frá þróunardeild fyrirtækisins sem eru byltingarkenndir blæðingar- og kæli tankar fyrir fiskveiðiskip sem tryggja betri meðferð og gæði á afla en áður hefur sést.
Sjáumst á bás 4-6127 http://www.euroseafood.com/10/custom/pdfs/Hall_4.pdf